Hvað er málið með Svía? Þeir geta allt. IKEA og H&M eru á meðal stærstu vörumerkja heims. Sænskar stelpur eru taldar þær fallegustu í heimi. Og svo er það tónlistinn. Slagsmalsklubben, Love is All, Bob Hund, Evróvisjón lögin þeirra, Basshunter, Peter Bjorn & John, Hello Saferide, I´m from Barcelona, Jenny Wilson, Tomas Brolin, Jens Lekman, José Gonzales, The Knife, Hakan Hellstrom, Lo-Fi-Fnk, Suburban Kids with Biblical Names, El Perro Del Mar og Frida Hyvonen. Svo eldri og stærri nöfn: Cardigans, Hives, Abba, Kent, The Wannadies og Björn Borg.
Sally Shapiro er girnileg ábót í þessa sænsku flóru.

Sally Shapiro - I´ll be by your side
Sally Shapiro - I know
Sally Shapiro - Anorak Christmas
Sally Shapiro - Sleep in my arms
Ég get lofað þér því að þú verður ekki sjóveikur eftir að hafa hlustað á þessa flauelsmjúku electro tóna frá Svíaþjóð.
ÞETTA ER SVO TÖFF!!! (þá á ég við þrjá hluti samtímis. 1. Nýja útlitið á síðunni. 2. Sally. 3. Skær bleika naglalakkið af stelpunum á myndinni, smonsh!).
ReplyDeleteblam!... stórgott look... geturu samt haldið myndavélinni kjurri af róbótunum... ég er að verða sjóveikur
ReplyDeleteBam!
ReplyDeleteÁnægður er ég, mjög, með þennan glæsibæ hér, sem og metnaðinn með téðan glæsibæ.
Lúkk og linkar eru til fyrirmyndar.
Til hamingju.
Þetta look er mjög.
ReplyDeleteRóbot tanzmatic er mjög.
Textinn í fyrirsögninni er fokking geðveikislega fyndinn.
Nú hlæ ég bara.
Hlæ og hlæ.
Nú ert þú búinn að vera stöðugt góður í bloggi svo þú ert kominn í bókamerki (e.bookmarks) hjá mér.
ReplyDelete