ATTENTION: Your security is our aim. With or without hats, we try to make our readers feel welcome. From the mists of downtown Reykjavik we hype tunes that can make our society a safer place.

Monday, February 10, 2003

Heldur betur.

Veðurfræðingurinn á stöð 2 sagði orðið "ofsaveður" sex sinnum á meðan útlistingum hennar stóð í gær. Ótrúlegt. Furðulegt hvað fólk á það til að segja sömu hlutina aftur og aftur. Furðulegt hvað fólk á það til að segja sömu hlutina aftur og aftur. "Írak" og "ha?" ásamt að sjálfsögðu hinu magnaða "ofsaveður" skipa að þessu sinni þrjú efstu sæti Coke-Orðalistans á Íslandi þessa vikuna, þó ekki endilega í þessari röð. "Ofsaveður" kemur sjóðandi h8 og nýtt inn, náði meira að segja að ryðja smellinum "álver" úr sessi, en "Írak" er traust í sessi sem fyrr.

Annars er þetta svona hanga-inni-að-gera-eitthvað-nett ofsaveður, sem er gott tilefni til að tjekka á þessu. Þið skuluð samt ekki gera það ef þið eruð stelpur.

Betur heldur.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home