Hæhæ.
'I fjölmiðlasamfélagi samtímans vill nokkuð brenna við: (Furðuleg og jafnvel óáhugaverð upphassetning en endilega lesið áfram(Nei þetta er ekki stafssetningarvilla)) Að almenningur, og þar af leiðandi við, fáum leið á ótrúlegustu og áhugaverðustu málum. Spurning hvort að þetta sé einhverskonar öfug sálfræði...Að drekkja umræðunni hreinlega í sjálfri sér. 'Arni Johnsen til dæmis. 11. September. Og, síðast en ekki síst, stríð í 'Irak.
'Eg er búinn að fá leið á því og það er ekki einu sinni byrjað.
'Ahugaverðasta umræðan í dag er hins vegar tvímælalaust umræðan um lögleiðingu kannabisefna. Því að allir hafa sína skoðun á þessu máli...ég tek það skýrt fram að ég er hlutlaus í skrifum mínum hér...og þessar skoðanir og rökin sem þeim fylgja eru jafn ólík og þau eru mörg. Sem er áhugavert. Stríðið í 'Irak..."'Eg er á móti því...Bush er hálfviti...Rugl...Olía..." o.s.frv. Einsleit og mónótónísk umræða drepur mannssálina hægt og rólega. Það vantar eitthvert fútt í þetta mál. Til dæmis ef Davíð Oddsson kæmi með aðra sýningu. Myndi bara mæta í viðtal og segja: "Það þarf bara að sprengja þessa helvítis 'Iraka...Kenna þeim lexíu..."
Djöfull væri það skemmtilegt.
0 Comments:
Post a Comment
<< Home