Zpennandi:
Heldur betur.
Það zem er að redda mér í gegnum þennan tiltekna dag er biðin eftir kvöldinu, þegar krybburnar fara að mala og Innlit/útlit lýsir upp sjónvarpsskjáinn í skammdeginu. En það er ekki bara zjarmi Völu og strákanna hjálparkokka hennar sem laðar mann að Cassanum, það er líka losti og löðun hins óvænta. Samanber: Skyndilega: Kalkúnn.
En hin óbærilega zpenna að þessu zinni snýst ekki aðeins um ævintýri skötuhjúanna í þessum tiltekna þætti, heldur hlýtur einnig að verulegu leyti að ganga hring eftir hring í kringum þá grundvallarspurningu hvort Frikki c búinn að raka sig eður ei.
Er hann ennþá að zafna?
Djöfull er hann reffilegur með þetta skegg!
Er hann að fara í Pittinn?
Þetta kemur allt í ljós...Ég get ekki beðið!
0 Comments:
Post a Comment
<< Home